Sigríður Margrét, eða Sigga Magga eins og hún er yfirleitt kölluð, hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár, meðal annars hjá upplýsingafyrirtækinu Já og nú síðast starfaði hún sem forstjóri Lyfju. Hún hefur einnig setið í mörgum stjórnum meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands, Já og Bláa lónsins svo fátt eitt sé nefnt.
Sigga Magga tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins í byrjun september, en ráðning hennar er söguleg þar sem hún verður fyrsta konan sem mun gegna þeirri stöðu. Hún hefur sýnt það vel í verki að hún skorast ekki undan áskorunum en framundan bíður hennar krefjandi verkefni að semja um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.
Við áttum virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall við Sigríði þar sem við ræðum meðal annars komandi kjaraviðræður, efnahagsumhverfið, húsnæðismarkaðinn, lyfjabransann og starfsferilinn.
Þátturinn er í boði: Joe & the Juice - Tilboð alla miðvikudaga af djús og samloku! Nettó - Með Nettó appinu færð þú 2% af öllum kaupum í formi inneignar sem síðan er hægt að nota til þess að versla. World Class - Allir korthafar fá afslátt í spa og dekurmeðferðir.
Duck and Rose - Fiskur dagsins í hádeginu alla virka daga á 2.990 kr. og spennandi nýr matseðill fór í gang 10.10.23.
FLM - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Swapp Agency - Einfaldar utanumhald starfsfólks í fjarvinnu í öðrum löndum.
Fler avsnitt från "Fortuna Invest"
Missa inte ett avsnitt av “Fortuna Invest” och prenumerera på det i GetPodcast-appen.